fbpx

m

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur
adipiscing elit. Etiam posuere varius
magna, ut accumsan quam pretium
vel. Duis ornare

Latest News
Follow Us
Image Alt

Skilmálar einstaklingsferða

Almennir ferðaskilmálar í einstaklingsferð


 1. Upplýsingar og bókun 
Bókun á ferð er bindandi samningur á milli viðskiptavinar og ferðaskrifstofu, en þó að því gefnu að ferðaskrifstofa hafi staðfest bókun og viðskiptavinur hafi á réttum tíma greitt tilskilið staðfestingargjald. Ef viðskiptavinur hefur sett fram sérstakar kröfur um þjónustu skal það koma fram með skýrum hætti í pósti og mikilvægt er að viðskiptavinur fái staðfestingarpóst á móti frá ferðaskrifstofu um að óskin hafi borist og sé móttekin. Ferðaland áskilur sér rétt til leiðréttinga á villum sem rekja má til rangrar uppsetningar, villna eða tæknilegra ástæðna.  
 
2. Greiðslur 
Staðfestingargjald greiðist við bókun. Staðfestingargjald endurgreiðist ekki ef ferðaskrifstofa riftir samningi vegna vanefnda farþega. Lokagreiðsla skal greiðast skv. skilmálum ferðaskrifstofu: Flug og pakkaferðir skulu fullgreiðast í síðasta lagi 8 vikum fyrir brottför og aðrar sérferðir í síðasta lagi 10 vikum fyrir brottför. Hægt er að sjá nánar um greiðslur staðfestingargjalds í verðskrá. 
 
Þegar fargjaldareglur flugfélaga eða annarra samstarfsaðila ganga lengra hvað greiðslur varðar en almennir skilmálar Ferðalands, gildir sú regla er gengur lengra.  
 
3. Verð og verðbreytingar 
Uppgefið áætlað verð við staðfestingu pöntunar kann að taka breytingum ef breyting verður á einum eða fleiri eftirfarandi þáttum:  
– Flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði.  
– Sköttum eða gjöldum fyrir tiltekna þjónustu, s.s. lendingargjöldum eða gjöldum fyrir að fara um borð eða frá borði í höfnum eða á flugvöllum.  
– Gengi þess gjaldmiðils sem á við um tiltekna ferð.  
 
4. Afbókun eða breytingar á bókun 
Hringja skal í síma 414 1515 vegna afbókunar. Einnig má senda tölvupóst á info@kompaniferdir.is. ATH. Farþega er heimilt að afbóka ferð vegna stríðsaðgerða, lífshættulegra smitsjúkdóma eða annarra hliðstæðra tilvika sem hafa afgerandi áhrif á framkvæmd ferðar þegar 14 dagar eða færri eru til brottfarar, hafi stjórnvöld gefið út ferðaviðvaranir á svæðum sem ferð tekur til. Í slíkum tilvikum ber ferðaskrifstofu að endurgreiða allt fargjaldið að frádregnu staðfestingargjaldi. Þetta gildir þó ekki ef farþegi hefði mátt sjá fyrir ofangreinda atburði og ástand er ferð var keypt. 
 
a) Pakkaferðir (flug og hótel):  Heimilt er að afbóka eða gera breytingu á bókun án kostnaðar sé það gert innan 7 daga frá því að bókun var gerð og meira en 10 vikum fyrir brottför. Berist afbókun síðar, en þó 10 vikum fyrir brottför, áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að halda staðfestingargjaldinu eftir ásamt öllum þeim greiðslum sem hafa borist. 
 
Berist afbókun 10-6 vikum fyrir brottför heldur ferðaskrifstofan eftir 90% af heildarverði bókunar. Berist afbókun með minna en 6 vikna fyrirvara heldur ferðaskrifstofan eftir 100% af heildarupphæð bókunar. Í þeim tilvikum þar sem heildarupphæð er óendurkræf getur farþegi þó farið fram á endurgreiðslu á flugvallasköttum, svo lengi sem farþegi láti vita af forföllum fyrir brottför. 
 
Heimilt er að breyta dagsetningu, lengd ferðar og gistivalkosti (ef við á og mögulegt er vegna skilmála) ef greitt er breytingargjald og breytingin er gerð með meira en 30 daga fyrirvara. Sé breyting gerð með minna en 30 daga fyrirvara telst það sem afbókun og ný bókun og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til greiðslu samkvæmt því, sbr. framangreinda afbókunarskilmála. Breyting á áfangastað skoðast alltaf sem afbókun og ný bókun. Heimilt er að breyta dagsetningum /lengd ferðar ef greitt er breytingargjald og breytingin er gerð með meira en 30 daga fyrirvara. Ef bókað er dýrara fargjald greiðir farþegi breytingagjald og mismun á fargjöldum. Ekki er hægt að breyta í lægra fargjald og fá mismun endurgreiddan. Ekki er unnt að breyta bókaðri ferð í tilboðsferð. 
 
b) Flug eingöngu:  Heimilt er að afbóka eða gera breytingu á bókun án kostnaðar sé það gert innan 7 daga frá því að bókun var gerð annars er ekki hægt að afbóka né að fá endurgreitt. 

Farþegi getur þó farið fram á endurgreiðslu á flugvallasköttum, svo lengi sem farþegi láti vita af forföllum fyrir brottför.  
 

c) Sérferðir, litlir hópar og siglingar: 
Staðfestingargjald í sérferðir, leiguflug, fyrir litla hópa og siglingar er óendurkræft frá staðfestingu bókunar. Staðfestingargjald í sérferðir, leiguflug og siglingar er hærra en almennt staðfestingargjald – sjá verð í verðskrá. 
 
Þær greiðslur sem borist hafa ferðasala eru allar óendurkræfar þar sem byrgjum er greitt jafnóðum.   
 
 
5. Framsal bókunar 
Farþegi getur framselt bókun sína til annars aðila. Skal farþegi sem og framsalshafi tilkynna ferðaskrifstofu strax um slíkt framsal. Framseljandi ferðar og framsalshafi eru þá sameiginlega og hvor í sínu lagi ábyrgir gagnvart ferðaskrifstofu að því er varðar greiðslu á eftirstöðvum og öllum aukakostnaði er kann að leiða af slíku framsali, t.a.m. breytingargjaldi. Í þeim tilvikum þar sem aðilar sem selja þjónustu í ferðina hafa sett ákveðin skilyrði þannig að það sé ekki í valdi ferðaskrifstofu að breyta þeim, er óheimilt að framselja ferð. 
 
6. Aflýsing ferða og/eða breytingar á ferðaáætlun 
Ferðaskrifstofa ber enga ábyrgð á hvers konar ófyrirsjáanlegum aðstæðum sem geta átt sér stað, aðstæðum sem ferðaskrifstofa getur engu um ráðið og ekki komið í veg fyrir, né afleiðingum af völdum þeirra. Í slíkum tilvikum er ferðaskrifstofu heimilt að breyta eða aflýsa ferðinni með öllu og verður farþegum tilkynnt um það tafarlaust. Geri ferðaskrifstofa breytingar á ferð áður en hún hefst skal tilkynna það farþega strax. Sé um verulega breytingu að ræða ber farþega að tilkynna ferðaskrifstofu eins fljótt og unnt er hvort hann óski eftir að rifta samningnum.  
 
Ferðaskrifstofu er heimilt að fella niður ferð, ef í ljós kemur að þátttaka er ekki næg. Almennt miðast lágmarksþátttaka við að a.m.k. 70% nýtingu á flugi, bæði á út- og heimflugi. Sé nýting tiltekinnar flugleiðar á ákveðnu tímabili (flugsería) að jafnaði undir 75% er ferðaskrifstofu heimilt að fella niður öll flug á tilteknu tímabili á þeirri flugleið (flugseríu), jafnvel þótt lágmarksþátttaka hafi náðst í einstaka flugi. Í sérferðum gildir að lágmarksþátttaka er 15 manns nema annað sé sérstaklega tilgreint í ferðalýsingum eða auglýsingum. 
 
Tilkynna ber þátttakendum alla jafna um niðurfellingu pakkaferðar eigi síðar en 21 degi fyrir áætlaðan brottfarardag og 14 dögum fyrir brottför ef einungis um flug er að ræða. Pakkaferðir sem vara í 7 daga eða skemur má þó aflýsa 14 dögum fyrir brottför. Sé ferð aflýst, eða farþegi riftir samningi þegar um verulega breytingu er að ræða á ferð áður en hún hefst, á farþegi rétt á fullri endurgreiðslu eða taka í staðinn aðra sambærilega ferð ef ferðaskrifstofan getur boðið slík skipti. Ef ferðin sem boðin er í staðinn er ódýrari fær farþegi verðmismun endurgreiddan. Ef ferðin er dýrari greiðir farþegi mismuninn. ## Tímasetningar sem gefnar eru upp við bókun ferðar eru áætlaðar og geta breyst. 
 
7. Skyldur farþega 
Farþegi er skuldbundinn að hlíta lögum og reglum opinberra aðila í þeim löndum sem hann ferðast um, taka tillit til samferðamanna sinna og hlíta þeim reglum sem gilda á hverjum stað, enda ber hann ábyrgð á tjóni sem hann kann að valda með framkomu sinni.  
 
Farþegi sem mætir ekki á brottfararstað á réttum tíma hefur fyrirgert rétti sínum til bóta ef hann missir t.a.m. af flugi af þeim sökum. Brjóti farþegi af sér í þessum efnum, eða gefi við upphaf ferðar tilefni til þess að ætla að hann verði samferðafólki sínu til ama með framkomu sinni, er ferðaskrifstofu heimilt að hindra hann í að hefja ferð sína eða halda henni áfram og verður hann þá að ljúka henni á sinn kostnað, þ.e.a.s. án endurkröfuréttar á hendur ferðaskrifstofu. 
 
8. Takmörkun ábyrgðar, skaðabætur og forfallatryggingar 
Ferðaland býður ekki uppá forfallagjald né ferðatryggingar. Farþegar eiga þess kost að kaupa á sinn kostnað ferða-, forfalla-, slysa-/sjúkra- og farangurstryggingu hjá tryggingafélögum. Þá eru ferðatryggingar oft í boði fyrir handhafa kreditkorta.  
 
Farþegar eru hvattir til að kynna sér sína tryggingavernd og þá skilmála sem gilda um þær tryggingar sem þeir hafa keypt. Mælt er með að ferðamenn hafi meðferðis sjúkratryggingakort frá Sjúkratryggingum Íslands. Hægt er að sækja um það hér: https://www.sjukra.is/ 
 
Ferðaskrifstofa áskilur sér jafnframt rétt til að takmarka skaðabætur í samræmi við takmarkanir sem kveðið er á um í landslögum eða alþjóðasamningum. 
 
Farþegar sem taka þátt í hópferð þurfa að meta hvort heilsa þeirra sé nógu góð til að geta fylgt skipulagi ferðar þannig að veikindi valdi öðrum í hópnum ekki óþægindum eða tefji ferðina. Ef farþegi veikist í ferð og er ekki fær um að halda ferðaáætlun eða er óferðafær á heimferðardegi, er farþegi á eigin vegum og ber sjálfur ábyrgð á kostnaði sem af því kann að hljótast, sem og kostnaði við heimferð. Farþegi á ekki rétt á endurgreiðslu þótt hann ljúki ekki ferð af slíkum ástæðum eða öðrum sem ferðaskrifstofunni verður ekki um kennt. 
 
Hugsanlegar athugasemdir vegna ferðar skulu berast fararstjóra tafarlaust. Ef fararstjóri getur ekki greitt úr málinu þá skal hafa samband við söluskrifstofu undir eins svo hægt sé að greiða úr vandanum. Ef fararstjóra er ekki gert viðvart um óánægju farþega hefur farþegi fyrirgert sér öllum rétti á bótum. Athugasemd skal berast Ferðalandi skriflega í tölvupósti eins fljótt og við verður komið eða innan mánaðar frá ferð. Að öðrum kosti verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina. 
 
Verði farþegi fyrir meiðslum eða eignatjóni í ferð og telji hann sig eiga rétt á skaðabótum en tjón er ekki hægt að rekja til vanrækslu ferðaskrifstofu (vegna óviðráðanlegra aðstæðna eða atburðar sem veitandi þjónustunnar gat með engu móti séð fyrir eða komið í veg fyrir) skal farþegi leita réttar síns til viðeigandi aðila. 
 
 
9. Þjónustugjöld 
Sjá upplýsingar í verðskrá.  
 
Aðrir skilmálar Ferðalands  
 
Breytingar á flugáætlun  
Flugfélög hafa rétt til breytinga á flugáætlun og flugtímum vegna veðurfarslegra orsaka, tafa vegna mikillar flugumferðar, vegna seinkunar á komu vélar úr öðru flugi, eða vegna bilana. Flugfélög hafa rétt til að skipta um flugvélakost reynist það nauðsynlegt. Ferðland bera ekki ábyrgð á slíkum töfum flugfélaga eða breytingum frá fyrirfram staðfestri flugáætlun. 
 
Breytingar á hótelum  
Samkvæmt starfsreglum gististaða hafa hótel og íbúðahótel leyfi til að yfirbóka gistirými til að mæta eðlilegum afföllum á pöntunum. Það getur gerst að gististaðir hafi ekki pláss fyrir alla þá sem bókaðir eru á viðkomandi stað þrátt fyrir staðfestingu til ferðaskrifstofu. Gististaðirnir eru þá skyldugir til að útvega viðskiptavinum, sem ekki fá gistingu, sambærilegt eða betra hótel. Ferðaland bera ekki ábyrgð á yfirbókunum gististaða, en aðstoða að sjálfsögðu farþega sína. 
 
Breytingar á sætabókunum  
Sætabókanir geta breyst án fyrirvara vegna breytinga á flugáætlun eða annarra ófyrirsjáanlegra kringumstæðna. Í slíkum tilfellum er ávallt reynt að útvega viðskiptavini sambærilegt sæti með svipaða staðsetningu í flugvélinni eins og upphafleg bókun segir til um. Sætabókanir fást ekki endurgreiddar nema að um verulega tilfærslu hafi verið að ræða. Farþegi þarf þá að framvísa brottfararspjaldi sem sýnir úthlutað sæti á viðkomandi flugi. Börn mega ekki sitja við neyðarútgang.  
 
Hjólastólar  
Ákveðnar reglur gilda einnig um farþega í hjólastól. Farþegar í hjólastól geta eingöngu bókað sér sæti við glugga. Farþegum með skerta hreyfigetu er ekki heimilt að bóka sæti í miðju eða við gang eða sitja í sætum við neyðarútgang.  
 
Skemmdir á farangri 
Ferðaland bera ekki ábyrgð á skemmdum á farangri sem kunna að verða í leiguflugi, áætlunarflugi, áætlunarbifreiðum eða öðrum farartækjum. Verði skemmdir á farangri í flugvél ber farþega að fá skriflega skýrslu hjá flugvallaryfirvöldum á staðnum, að öðrum kosti hefur farþegi fyrirgert rétti sínum til bóta. Flugfélögin sjá um greiðslu skaðabóta samkvæmt alþjóðlegum reglum og er greiðsla send beint til farþega. Ferðaland ber ekki ábyrgð ef farangur tapast, skemmist eða hann berst farþega seint vegna rangrar afgreiðslu á flugvelli, sú ábyrgð er alfarið á þjónustuaðilum flugfélaga. Munið að passa uppá miðan sem oft er límdur á passann. 
 
Verðbreytingar  
Auglýst verð getur hækkað og lækkað án fyrirvara. 

VEGABRÉF OG ÁRITANIR 

Gætið vel að gildistíma vegabréfsins fyrir brottför. 

Athugið að fyrir suma áfangastaði þarf vegabréf að gilda a.m.k. 6 mánuði frá ferðaloksdegi. Ef ferðast á til Bandaríkjanna er nauðsynlegt að fylla út ESTA umsókn með að minnsta kosti þriggja daga fyrirvara. ESTA má sækja um hér https://esta.cbp.dhs.gov/ 
Nánari upplýsingar um vegabréfsáritanir og ferðatakmarkanir má finna á vefsíðu Utanríkisráðuneytisins https://www.stjornarradid.is/raduneyti/utanrikisraduneytid/

Athugið að áritanir og önnur leyfi eru alltaf á ábyrgð farþega.