Vilníus frá Egilsstöðum
Helgarferð sem kemur hópnum á óvart! / 7.-11. október 2026
Beint frá Egilsstöðum
Flogið út: 7.okt: EGS – VNO / Kvöldflug
Flogið heim: 11.okt: VNO – EGS / Seinni partur
📍 Innifalið í hópaferð:
– Beint flug til Vilnius og aftur til Egilsstaða
– 20kg innrituð taska og 5kg handfarangur
– Rútuferðir til og frá flugvelli erlendis
– Gisting á hóteli í 4 nætur með morgunverði
– Flugvallarskattar, gistináttaskattar og öll þjónustugjöld
– Íslensk fararstjórn í boði*
Árshátíðin er í góðum höndum 🎉
Við hjá Kompaníferðum sérhæfum okkur í árshátíðarferðum erlendis og sjáum um allt skipulag, frá ferðalaginu til framkvæmdar á staðnum.
Við önnumst skipulag árshátíðarinnar, afþreyingu og hópabókanir á veitingastöðum, hvort sem um er að ræða stóra eða smærri hópa. Fyrir stærri hópa er hægt að leigja sal undir árshátíðina og leiðir skipulagsteymi okkar ykkur í gegnum allt ferlið, þar á meðal uppsetningu, tæknimál og tímasetningar. Einnig bjóðum við upp á bókun á atriðum, veislustjórn og tónlistarfólki.
Fyrir smærri hópa bjóðum við upp á bókanir á veitingastöðum þar sem hópurinn fær afskert svæði fyrir sig.
Að auki getum við skipulagt fjölbreytta afþreyingu í Vilníus, svo sem:
-
Leiðsagðar gönguferðir um sögulega miðbæinn
-
Smökkunarferðir (bjór, vín eða „local“ brennivín)
-
Escape room eða teymiseflandi hópverkefni
-
Kvöldskemmtun og bar hopping í líflegu næturlífi borgarinnar
Við tryggjum að árshátíðin ykkar í Vilníus verði vel heppnuð, eftirminnileg og laus við óþarfa áhyggjur.
