fbpx

m

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur
adipiscing elit. Etiam posuere varius
magna, ut accumsan quam pretium
vel. Duis ornare

Latest News
Follow Us

Steigenberger Makadi Golf

Fullorðins hótel með golfvelli og öllu!

Steigenberger Makadi er afskaplega vandað golfhótel sem skartar 18 og 9 holu golfvöllum sem hafa hlotið verðlaun sem bestu golfvellir í Egyptalandi 6 ár í röð. Hótelið er einungis fyrir fullorðna gesti sem hafa náð 16 ára aldri og skaðar ekki ef þeir hafa blússandi áhuga á gólfi!

Umhverfið er glæsilegt og sundlaugin býður upp á dásamlegan sundsprett.  Hótelið er einnig með einkaströnd þar sem vinsælt er að kafa, snorkla og skoða sjávarlífsflóruna, skjaldbökur og litríka fiska.   

Öll herbergin eru loftkæld, búin einkasvölum og sérbaðherbergi með sturtu, baðsloppum og hárþurrku. 

Á aðalveitingastaðnum, The Eagle, eru rausnarleg morgun- og kvöldverðarhlaðborð framreidd á hverjum degi og veitingastaðurinn Nineteen framreiðir a la carte hádegisverð. Nokkur kvöld í viku eru lífleg skemmtiatriði með meðal annars austrænum dansi og söng.  

Þú pantar rástíma á golfvöllinn í gegnum hótelið. Einnig er hægt að æfa í líkamsræktarsalnum og í heilsulindinni er hægt að velja á milli ýmissa afslappandi meðferða.

Fullkomið val fyrir þau sem vilja sveifla gólfkylfunni, finna hlýja golu og slappa síðan af við sundlaugabakkann.

Myndir

Helstu atriði

Fimm stjörnu lúxus gólf hótel 

Aðeins fyrir fullorðna  

Allt innifalið

➤ Morgun, hádegis- og kvöldmatur 

2 à la carte veitingastaðir 

Allir drykkir innifaldir  

Bar og setustofa á hótelinu 

1 upphituð sundlaug 

93 herbergi – 5 hæðir 

Internet – Wifi 

Líkamsrækt 

Heilsulind 

18 holu par 72 golfvöllur 

9 holu golfvöllur 

Golfbúnaðarleiga  

Booking:  9,1 í einkunn 

40 mínútur frá flugvelli 

Íslensk fararstjórn 

24/7 þjónusta  

Besti gólfvöllur Egyptalands 6 ár í röð 

Verð

Senda fyrirspurn

Hafðu samband við okkur og tryggðu þér pláss til Egyptalands jólin 2024.