Það eru fáar borgir í Evrópu sem ná að toppa Lisbon. Frábær staður fyrir árshátíðarferð!
Lissabon, höfuðborg Portúgal er einstaklega lífleg borg þar sem fornaldar sagan fléttast saman við nútímann. Borgin er staðsett meðfram ánni Tagus og heillar ferðalanga með krúttlegum hverfum, litríkum götum og ríkum menningararfi.
Veturnir í Lissabon eru hlýrri en í flest annarstaðar í Evrópu og sumarið langa nær frá lok apríl til október og hiti nær allt að 29°C. Þetta gerir Lissabon að einstökum áfangastað til að skoða fótgangandi allt árið um kring. Lissabon er oft kölluð San Francisco Evrópu. Þessi litríka og líflega borg við vatnið er klædd skrautflísum, er með brattar hæðir, sporvagninn fræga og sína eigin útgáfu af Golden Gate brúnni!
Fyrir matgæðinga er borgin einnig afar ánægjuleg en þarna er hægt að gæða sér á nýveiddum sjávarréttum, girnilegra bakkelsa og frábærri vínmenningu.
AFÞREYING Í LISSABON
Okkar metnaður liggur í því að gera upplifunina sem besta fyrir hópana okkar og bjóðum við uppá mun meira en bara flug og hótel. Við sérhæfum okkur í að skipuleggja afþreyingu fyrir hópinn á hverjum áfangastað fyrir sig. Við setjum upp dagskrá þar sem hver og einn einstaklingur í hópnum getur skráð sig og greitt fyrir sína ferð.
Það er fjöldinn allur af afþreyingu í boði sem leyfir þér að upplifa Lissabon á einstakan hátt. Við mælum með að fara í gönguferðir með leiðsögumanni, hjólaferðir og siglingar. Það er einnig mikið áhugaverðum kennileitum til að skoða víðsvegar um borgina líkt og farið var í hér að ofan.
Þessi listi er ekki tæmandi og það er margt fleira í boði. Við finnum afþreyingu sem hentar hverjum hóp fyrir sig og hans áhuga svo að allir finni eitthvað við sitt hæfi.
