fbpx

m

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur
adipiscing elit. Etiam posuere varius
magna, ut accumsan quam pretium
vel. Duis ornare

Latest News
Follow Us

Pickalbatros Aqua Vista Resort

Rennibrautir og fjölskyldufjör!

Þetta nútímalega 4-stjörnu hótel í Hurghada er staðsett aðeins 700 metra frá ströndinni. Gestir fá einnig frían aðgang að Albatros Aqua Park og barnavatnagarðinum í Aqua Blu Resort, auk þess sem þráðlaust net er aðgengilegt á öllu hótelsvæðinu.

Pickalbatros Aqua Vista Resort  er með fjórar sundlaugar, þar af sér laugarsvæði fyrir börn og fullorðna. Sólarbekkir við sundlaugina og ströndina eru í boði fyrir gesti án aukakostnaðar. Heilsulindin býður upp á gufubað, marokkóska hammam-baðstofu, snyrtistofu og nuddmeðferðir.

Öll herbergi á Pickalbatros Aqua Vista eru loftkæld og búin gervihnattasjónvarpi. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn gegn gjaldi.  Herbergin eru búin öryggishólfi og minibar, auk þess sem öll herbergi hafa svalir eða verönd. Hótelið er einnig með nútímalegt líkamsræktarsvæði með góðum tækjabúnaði.

Hótelið býður upp á þrjá hlaðborðsveitingastaði með fjölbreyttri alþjóðlegri matargerð, þar á meðal austurlenska, ítalska og asíska rétti. A la carte veitingastaðurinn býður upp á sjávarrétti gegn aukagjaldi. Gestir hafa úr fimm börum að velja, þar á meðal sundlaugarbar.

Myndir

Verð

Helstu atriði

Fjögurra stjörnu resort hótel 

Frábært fyrir alla fjölskylduna  

Allt innifalið, morgun, hádegi og kvöldmatur 

A la carte veitingastaðir 

Allir drykkir innifaldir  

Barir á hótelinu 

Kvöldskemmtanir 

4 sundlaugar

Internet – Wifi 

Líkamsrækt 

Heilsulind 

Aðgangur að vatnsrennibrautagarði

Barnasundlaug 

Barnaklúbbur 

Einkaströnd 

Booking:  9,2 í einkunn 

10 mínútur frá flugvelli 

24/7 þjónusta

Verð frá: 298.500kr.- á mann