fbpx

m

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur
adipiscing elit. Etiam posuere varius
magna, ut accumsan quam pretium
vel. Duis ornare

Latest News
Follow Us

Árshátíðarferð til Möltu

Beint leiguflug til Möltu / 29.apríl - 3.maí 2026

Árshátíðarferð á framandi stað

Kompaníferðir bjóða upp á beint leiguflug frá Keflavík til Möltu dagana 29. apríl – 3. maí 2026. ✈️
Takmarkaður sætafjöldi í boði – tryggðu þér pláss fyrir þitt fyrirtæki tímanlega.

Malta er frábær áfangastaður fyrir árshátíðarferð, sérstaklega þegar hægt er að fljúga beint.
Eyjan sameinar sól, sjarma og hlýtt miðjarðarhafsandrúmsloft með lifandi borgarlífi, glæsilegum veitingastöðum og fjölbreyttri afþreyingu sem hentar hópum af öllum stærðum.

Hvort sem markmiðið er elegant árshátíð, skemmtileg dagskrá fyrir teymið eða blanda af slökun og upplifun, þá hefur Malta allt sem þarf.

Beint flug þýðir styttri ferðatími, minni fyrirhöfn og meiri tími saman á staðnum. Þannig kemst fyrirtækið á framandi áfangastað án flókins flugskipulags og heldur ógleymanlega árshátíð í hlýju miðjarðarhafslofti 🌞🥂

Flugupplýsingar

Flogið út: 29.apríl: KEF – MLA

Flogið heim: 3.maí: MLA – KEF

 

📍 Innifalið í ferðinni:
– Beint flug til og frá Möltu

– 20kg innrituð taska og 5kg handfarangur

– Hótelgisting í 4 nætur

– Flugvallarskattar, gistináttaskattar og öll þjónustugjöld

– Íslenskir fararstjórar á staðnum

Fáðu tilboð

Tryggðu þér sæti fyrir þinn hóp!

Sendu okkur línu á info@kompaniferdir.is eða heyrðu í okkur í síma 433-4000.

Árshátíðin á Möltu

Árshátíð á Möltu er frábær kostur fyrir fyrirtæki sem vilja sameina skemmtilega árshátíð, hlýtt loftslag og einstaka upplifun. Við hjá Kompaníferðum sérhæfum okkur í árshátíðarferðum erlendis og sjáum um allt skipulag – frá ferðalögum til framkvæmdar á staðnum.

Við önnumst skipulag árshátíðarinnar, afþreyingu og hópabókanir á veitingastöðum, hvort sem um er að ræða stóra eða smærri hópa. Fyrir stærri hópa er hægt að leigja sal undir árshátíðina og leiðir skipulagsteymi okkar ykkur í gegnum allt ferlið, þar á meðal uppsetningu, tæknimál og tímasetningar. Einnig bjóðum við upp á bókun á atriðum, veislustjórn og tónlistarfólki.

Fyrir smærri hópa bjóðum við upp á bókanir á völdum veitingastöðum þar sem hópurinn getur fengið afskert svæði fyrir sig og nýtur framúrskarandi matarupplifunar í Möltu.

Að auki getum við skipulagt fjölbreytta afþreyingu á Möltu, svo sem:

  • Gönguferðir með leiðsögn um sögulega staði

  • Buggy- eða jeppasafarí

  • Bátsferðir fyrir hópa

Með faglegu skipulagi, reynslu og traustum samstarfsaðilum tryggjum við að árshátíð á Möltu verði vel heppnuð, eftirminnileg og laus við óþarfa áhyggjur.