fbpx

m

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur
adipiscing elit. Etiam posuere varius
magna, ut accumsan quam pretium
vel. Duis ornare

Latest News
Follow Us

Grísku eyjarnar

Beint flug frá Keflavík / 25.maí - 4.júní

Upplifðu Grikkland!

Komdu með í sólríkt ævintýri í Grikklandi – í beinu flugi frá Keflavík!

Við bjóðum upp á tvær spennandi leiðir til að njóta gríska sumarsins.

🌊 Eyjahopp – ferðin hefst með gistingu í Heraklion á Krít áður en haldið er með ferju yfir á nokkrar af fallegustu eyjum Grikklands, t.d. Santorini, Naxos, Ios eða Mykonos. Gist er á völdum 2–4 stjörnu hótelum og við aðstoðum með að sníða ferðina að þínum óskum – hvort sem þú vilt bæta við eyjum, lengja dvölina eða velja ákveðin hótel.

🏖️ Krítarpakki – fyrir þá sem vilja sleppa eyjaflakkinu og einfaldlega njóta sólar, stranda og grísku stemningarinnar á einni af fallegustu eyjum Miðjarðarhafsins. Þú getur valið að gista á einum stað alla ferðina eða skipta henni í tvennt og upplifa tvo ólíka hluta Krítar eða ferðast á aðra eyju.

Við erum opin fyrir séróskum og leggjum okkur fram við að aðlaga ferðina að þínum þörfum.

Flugupplýsingar

Flogið út – 25.maí:

KEF – HER / 23:30  – 08:00 +1

Flogið heim – 4.júní:

HER – KEF / 10:00 – 15:00

Bókaðu núna og tryggðu þér pláss!

Sendu okkur fyrirspurn og við sendum þér upplýsingabækling með ítarlegri upplýsingum um ferðina. Við finnum einnig hótel sem henta þínum óskum og aðlögum ferðina að þér.

Ertu með spurningu? Sendu okkur línu á info@kompaniferdir.is eða heyrðu í okkur í síma 433-4000.

Verð frá: 199.400kr.- á mann í tvíbýli

Pakki 1 – Eyjahopp um grísku eyjarnar 🌊

Þú gistir fyrst á heillandi hóteli í Heraklion á Krít áður en þú siglir milli einstakra grískra eyja. Í ferðinni upplifir þú töfrandi Santorini, Naxos og getur svo valið á milli hinnar fjörugu Mykonos eða Ios.

Þú getur líka sérhannað ferðina þína með því að bæta við eyjum eða lengja dvöl þína á uppáhalds eyjunum. Eftir níu ógleymanlegar nætur liggur leiðin aftur til Íslands, full af góðum minningum og sól í hjarta.

 

📍 Innifalið í ferðinni:
  • Flug til Krítar: báðar leiðir
  • Sigling á milli eyjanna
  • 18 kg taska og 5 kg handfarangur.
  • Gisting í 9 nætur með morgunverði (2-3 stjörnur eða 3-4 stjörnur).
  • Ferðahönnun, heildarskipulag og umsjón ferðarinnar, bókun á flugi, hótelgistingu og öllu sem við kemur ferðinni.
  • „Meet and greet“ á flugvelli.
  • Flugvallarskattar, gistináttaskattar og öll þjónustugjöld.
Verðmál – Grísku eyjarnar

2-3 stjörnu hótelpakki: 238.000kr.- á mann í tvíbýli

3-4 stjörnu hótelpakki: 269.500kr.- á mann í tvíbýli

*Einstaklingsherbergi kostar 65.000kr.- aukalega.

Pakki 2 – Sólardagar á Krít 🏖️

Ef þú vilt slaka vel á í sólinni á einum stað er þessi pakki fyrir þig. Ferðin hefst á sama þægilega hátt, með flugi frá Akureyri og beinum akstri til Keflavíkur. Þaðan liggur leiðin beint til hinnar sólríku Krítar þar sem þú gistir í níu nætur á hóteli í hjarta Heraklion. Hér færðu næði til að njóta sólarinnar, sjávarins og þess besta sem þessi fallega eyja hefur upp á að bjóða. Góður matur, strandarlíf og grísk menning gera þessa ferð að ómótstæðilegri upplifun.

📍 Innifalið í ferðinni:
  • Flug til Krítar: báðar leiðir
  • 18 kg taska og 5 kg handfarangur.
  • Gisting í 9 nætur með morgunverði (2-3 stjörnur eða 3-4 stjörnur).
  • Ferðahönnun, heildarskipulag og umsjón ferðarinnar, bókun á flugi, hótelgistingu og öllu sem við kemur ferðinni.
  • „Meet and greet“ á flugvelli.
  • Flugvallarskattar, gistináttaskattar og öll þjónustugjöld.
Verðmál – Krít

2-3 stjörnu hótelpakki: 199.400kr.- á mann í tvíbýli

3-4 stjörnu hótelpakki: 229.000kr.- á mann í tvíbýli

*Einstaklingsherbergi kostar 65.000kr.- aukalega.

Viltu vita meira? Sendu okkur línu og við sendum þér bæklinginn með öllum helstu upplýsingum!

Sendu fyrirspurn og fáðu sendan upplýsingabækling!

Sendu okkur fyrirspurn og við sendum þér upplýsingabækling með öllum helstu upplýsingum um ferðina. Við aðstoðum einnig við val á hóteli sem hentar þínum óskum og sérsníðum ferðina að þér.